Hvað er eiginlega að ??
Á að setja barn í fangelsi til 25 ára aldurs ?? Þegar börn brjóta af sér er það engin lausn að henda því í fangelsi !! Þetta hljómar eins og dómur frá 14 öld !!
Það á að hjálpa börnum, ekki brjóta þau niður og þá skiptir ekki máli hvað þau gera af sér, börn ERU börn og geta ekki verið neitt annað.
Svakalega er pirrandi að lesa svona forheimsk lög !!
|
13 ára ákærður fyrir íkveikju |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 19.9.2009 | 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sem betur fer, en það þurfti læknisferð og sýklalyf til þess. Ég var með flensu eða hvað sem þetta nú var í rúmar 2 vikur !!! Það var komið út í slen og sloj krydduðu með hausverk og svima sem stóð í 3 daga, en þá fékk ég nóg og fór til læknis.
Það er ekkert að gerast hjá mér þessa dagana, þeir líða bara hver á eftir öðrum og eru barasta alveg prýðisdagar. Ég er farin að sofa fyrr á kvöldin núna, eða alveg 2 tímum a.m.k. fyrr en ég gerði áður og þetta er að skila árangri.....það er auðvitað ekki vit í neinu öðru en að fá sinn 8 tíma svefn.....annars verð ég mygluð fyrir aldur fram.
Ég nenni ekki að skrifa....ég he það kannski bara of náðugt þessa dagana til að vera í stuði til að skrifa um eitthvað spennandi.
Gengur vel í fjarnáminu mínu og svo er eitt sem ég verð að leiðrétta varðandi skjálftana hér í vor ( var að lesa bloggið mitt síðan þá ) þeir stóðu í um 20 sek. en ekki 8 sek. eins og ég hélt fyrst......hlaut líka að vera því mér fannst það alveg út úr myndinni að allur þessi tími hafi verið bara 8 sekúndur.
Jebb......skrifa meira síðar....því ég verð að fara að sofa.
Jú, eitt í viðbót !! Tók upp iðju sem ég hef ekki stundað síðan ég var tilneydd hjá Helgu handó hér í den en það er prjónaiðkun....og fyrsta verkefnið er teppi handa litlu kríli í jólagjöf.....sko mig.
See ya.
Bloggar | 30.9.2008 | 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég eyði alltaf mestum tíma í að finna góða fyrirsögn.......og mér leiðist það því mér finnst fyrirsagnir ekkert merkilegar og það er öllum sama um fyrirsagnir......nema blaðamönnum....og kannski rithöfundum.
Annars er ég bara orðin nokkuð góð í flensunni, er að vísu enn með smá verki hér og þar í búknum. Patrekur er líka orðinn hress og það bólar ekkert á fleiri flensum hjá honum í bili......7-9-13.
Hef bara farið einu sinni út að labba í heila viku og það er bara ekki gott, nú er um að gera að skella tónlistinni í eyrun í kvöld og strunsa um götur bæjarins. Best finnst mér þegar það er smá rigning, það er svo rosalega hressandi. Ég fór út að labba í fyrrakvöld og það var einmitt rigning, gallinn var bara að út af verkjunum sem fylgir flensunni þá var eiginlega bara vont að labba.
Langar að kaupa diskinn með Amy Winehouse og hef langað til þess í langan tíma en svo þegar ég held á disknum og er við það að fara að kaupa hann, þá get ég bara ekki látið verða af því. Hún er svo aumkunarverð og mikið dópistahró að mig bara langar ekki til að hafa disk með henni í hillunum mínum.........Janis er afsökuð því hún var uppi á tímum sem dóp var í morgunmat á sumum heimilum án athugasemda, en með Amy er þetta þannig að við vitum að hún veit að við vitum að hún er á kafi í dópi og sikk líferni og svo rúllar þetta bara áfram eins og reality show undir fyrirsögninni " Hvenær drepst Amy ??? ".
Get ekki haft þessu grindhoruðu skessu uppí hillu hjá mér.
Bloggar | 11.9.2008 | 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Við mæðginin erum bæði veik í dag.
Ég var öll að skemmast á laugardaginn og var orðin svo ömurleg um kvöldið að ég komst ekki út að hitta Viggu á Rauða húsinu eins og planið var. En við erum alltaf að segja við hvor aðra að nú veeeerrðum við að fara að hittast og svo loks þegar tækifærið kemur þá fæ ég flensu......great.
Ég var svo með slöppuna í allan gærdag og í dag. Patrekur fékk svo gubbupest í nótt kl. 3.00, þá var ég búin að sofa í klukkutíma því ég hafði legið andvaka í 2 tíma. Ég sofnaði svo ekki aftur fyrr en að verða 5.00 eftir að hafa skipt um náttföt á guttanum mínum 2 sinnum og einu sinni um sængurfötin hans. Hann stóð sig samt ósköp vel, grét bara pínulítið eftir hverja " útsendingu " á kvöldmatnum og öðru snarli en náði svo að sofna vel á milli.
Hann er enn með hita núna, en heldur niðri því sem ég gef honum. Hann fékk m.a. frostpinna áðan, en það er rosalega gott þegar maður er með hita og vill ekki neitt þungt í magann.
Jæja, það var eiginlega kominn háttartími hjá honum fyrir klukkutíma síðan en þar sem svefninn hefur raskast hjá honum þá er hann ekki á því að sofna fyrr en kannski núna.....sjáum til.
Sjálf ætla ég að skríða upp í sófa með teppið mitt og gamaldags pottakakó og velja mér einvherja góða mynd í skjábíóinu.
See ya !!
Bloggar | 8.9.2008 | 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27 dresses heitir hún og vá hvað þessi mynd var hroðalega léleg !!!
Aðalmanneskjan var á barmi taugaáfalls alla myndina því hún þjónaði öðrum svo mikið að það sáust án gríns fótsporin yfir hana þvera og endilanga.
Þetta átti víst að vera eitthvað krúttlegt og svo var greinilegt hvað þeir sem gerðu þessa mynd voru að reyna að hafa " gólfmottuna " eins og hún hafi gengið út úr kvikmynd frá ´50.s því hún minnti helst á Judy Garland á Prozac.
Svo gerðist það öllum að óvörum m.a.s. henni sjálfri að hún svolgraði í sig gommu af bjór í einu atriðinu og varð svakalega wild og vildi ekki betur til en hún vogaði sér að dansa uppi á borði og skvetta hárinu í allar áttir......þar áttum við semsagt að átta okkur á því að hún var bara hreint ekki eins ömurleg og hún virtist vera !!!......með því að verða pissufull......undarleg leið til að sýna betri hliðina á fólki.
Ekki leigja þessa mynd gott fólk.
Bloggar | 6.9.2008 | 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mér sýnist það svona að flestu leyti. Það er orðið ansi svalt á kvöldin og ég er alveg að renna út á tíma til að klára að mála framhliðina á húsinu mínu !!!
En ég á svo lítið eftir að það mun hafast......málið er að ég ætlaði að klára helst allt húsið í sumar en svo bara nenni ég ekki að eyða mínum dýrmæta frítíma í svona púl, sérstaklega þegar ég stend ein í þessu öllu.
Eina sem kemur mér af stað er eitt gott glas af ísköldum bjór og þá get ég klifrað stiga og talið sjálfri mér trú um að þetta sé rosalega gaman !!
Sumarið er búið að vera í meira lagi skemmtilegt, svo fátt eitt sé nefnt þá upplifði ég það kröftugan jarðskjálfta að ég gleymi honum seint eða aldrei, fékk mér nýrri bíl.....seldi Tóta gamla og fékk mér Yaris sem er risasmár !!!
Ég fór á menningarnótt með Elísubet vinkonu og með því að elta hana hús úr húsi niðri í miðbæ sló ég persónulegt met hjá sjálfri mér.....hef aldrei náð svona mörgum tónleikum á einu kvöldi !! Vorum reyndar báðar orðnar frekar þreyttar en ansi sáttar við gott kvöld. Við slóum líka met í stysta tíma á tónleikum en það voru tvær mínútur á Fræbblunum........mér hefur alltaf þótt söngvarinn svolítið krípí og Elísabet sagði sem satt var að þeir eru bara hreint ekki góðir, lengra nær það ekki.
Jónsmessunóttin var líka frábær !! Djamm á Rauða húsinu fram eftir, hitti Kareni og Viggu og fleiri frábæra Eyrbekkinga og endaði svo í partýi hjá Ívari og Fríðu með fleiri gestum með bjór og gott skap, Ívar var svo með kassagítarinn og allir lögðu sig fram við að syngja....gekk samt ekkert allt of vel stundum :-)
Ég er byrjuð að labba kröftugar og hressandi göngur á kvöldin með háværa tónlist í eyrunum og þetta er algjörlega himneskt því ég verð eins og spýtt út úr auglýsingu frá Hreysti eftir á !! Ég er bara einfaldlega farin að fara betur með mig og er t.d. farin að drekka ógeðslega vont aloa vera sull tvisvar á dag og full glös af grænmetissafa sem er ekki beint það besta á bragðið ( finnst mér ) en það er rosalega flott að finna hvað líkaminn er ánægður með þetta, og öll þörf fyrir nasl hverfur algjörlega.
En þetta hefur verið gott sumar, fór í ferðalag upp að Reykholti í Júní og við gistum á hóteli í miklu dekri og afslöppun. Þetta var eiginlega ferð til að leiða hugan að öðru en jarðskjálftum því ég var orðin ansi framorðin eftir stóru skjálftana.
Tiltektin eftir skjálftana var líka mesta tiltektar tjallens sem ég hef hingað til upplifað......men alive !!! ég er þekkt fyrir að taka vel til eftir mig og aðra en for crying out loud, þetta var jafnvel of mikið fyrir mig !!!
Ég sór þess eið um daginn að klippa ekki á mér hárið í eitt ár, og sjá hve sítt það verður......ég er nefnilega alltaf að tala um að mig langi í sítt hár en svo asnast ég alltaf til að klippa það aftur !!
Fékk svo góðan koss um daginn og það er ekki laust við að hjartað hamist ansi mikið......en það er alltaf gott að fá athygli svona einstöku sinnum frá heillandi manni :-)
En jæja, gott sumar og ég vona að haustið verði líka svona gott.
See ya !!
Bloggar | 3.9.2008 | 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
|
Hálendisbjörn trúlega hross |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 21.6.2008 | 02:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, þá er ég búin að setja inn myndir af nokkrum sjónarhólum inni á heimilinu mínu eftir skjálftana 29 maí s.l.
Ég er ekkert að setja inn myndir af gólfum, matarbúrinu eða þvottahúsinu enda skilur maður ekkert í þeim nema maður þekki heimilið vel :-)
Ég verð pirruð þegar ég sé myndina af skápnum sem fór yfir rúmið hans Patreks og skápnum sem fór yfir barnastólinn því það var svo oft sem ég var búin að segja við sjálfa mig að fara nú að drífa í því að festa þá við vegg......en auðvitað áttar maður sig ekki á aflinu sem fylgir skjálftum fyrr en EFTIR Á !!! Nú er ég búin að festa skápinn hans Patreks og færa rúmið frá og aðrir skápar sem ekki eru fastir liggja einfaldlega enn á gólfinu ( snyrtilega upp við vegg ) og bíða þess að ég taki upp hamarinn og festingarnar.....sem verður væntanlega um helgina.
Ég er nefnilega mjög slysahrædd manneskja og er konstant að skanna slysahættur og þetta vita þeir sem þekkja mig vel.... skil ekkert í sjálfri mér fyrir að hafa samt klikkað á þessu, það er nú ekki erfitt að festa skápa við vegg, það þarf skrúfur og borvél, thats it.
Átti góða helgi, fékk Lindu vinkonu í heimsókn og hún gisti í 2 daga með börnin sín 4. Gaman að hitta hana, enda sjáumst við svo sjaldan. Ég hélt líka upp á 2ja ára afmæli Patreks á sunnudeginum og húsið fylltist af gestum kl.15.00. Patrekur var voða kátur með allar gjafirnar sínar sem margar voru með sama þemað sem einkennist af bílum :-) Málið er að sá stutti elskar bíla, meiri bíla og ekkert nema bíla !! Hann fékk líka fyrstu boxerana sína og bol í stíl. Leikfangakastala með dreka, galdrakalli, prinsessu og riddara með svaka flottum hljóðum. Mömmunni til mikillar gleði fékk hann líka mjúka pakka :-)
Fórum ekki í skrúðgöngu þann 17 júní, heldur fór ég með Patreki og fl. í Húsdýragarðinn að skoða dýr og sleikja sólina. Fann allt í einu fyrir því þarna í Laugardalnum hvað ég sakna stundum Reykjavíkur, það væri nú bara æðislegt að búa í þessu hverfi og geta verið nær vinum sínum og stórum hluta fjölskyldunnar. En það er bara eðlilegt að finna þessa heimþrá, ég þarf bara að muna það líka hve yndislegt lífið mitt er í dag eftir að ég flutti þaðan. Ég er nú ekki alein hér á Eyrarbakka, mamma og Linda systir búa hér og svo er ég hægt og rólega að eignast góða vini hér.
Eins og einhver spekingur sagði þá gerast góðir hlutir hægt. Ég sakna stundum Reykjavíkur, en ef ég flytti nú þangað aftur er ég nokkuð viss um að eftir örfáa mánuði myndi ég iðrast mistaka minna og rífa í hár mitt og skegg....ef ég hefði skegg.
Jæja, see ya !!
Bloggar | 19.6.2008 | 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
En fyrr má nú andskXXXXs vera !!! Ég var ekki að tala um það að mig langaði að upplifa geðshræringar hennar og reiðiköst eins og núna undanfarið !!
Ég upplifði mína verstu reynslu fyrir viku síðan þegar stóri skjálftinn reið hér yfir og gerði mig svo hrædda að ég heyrði sjálfa mig öskra af hræðslu í fyrsta sinn á ævinni.....eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei gera þótt hrædd yrði.....en svona bregst maður við þegar maður heldur á 2ja ára barni sínu í fanginu meðan allt er að brotna og smallast í kringum mann, húsgögn að skellast á hvert annað og húsið ýmist lyftist upp og dettur svo niður um leið og hristingurinn er svakalegur. Ég gat ekki með nokkru móti staðið upp, heldur átti í mesta basli með að ríghalda í Patrek og reyna að koma honum undir mig svo ekkert félli á hann.
En ég lá á gólfinu þegar skjálftinn skall á, ég var að leika við Patrek og Kládíu litlu inn í gestaherberginu sem er ekki stórt og því ekki beint kræsilegt að vera þar í svona látum, mamma sat líka þarna inni með prjónana sína og var að bíða eftir 16.00 fréttum í útvarpinu......hún ætlaði að gá hvort eitthvað yrði sagt um litla skjálftann sem fannst nokkru fyrr um daginn.......og viti menn, hún fékk fréttina bara heim í stofu !!!
Hljóðin í skjálftanum einum er alveg nógu óhugnuleg, hvað þá þegar allt hitt bætist við.
Stærsti skjálftinn stóð í c.a. 8 sekúndur og þetta voru lengstu sekúndur sem ég hef upplifað.
Þegar skjálftinn var að minnka gátum við loks komið okkur úr herberginu og beinustu leið út með börnin. Sem betur fór var eitt barnið farið til Reykjavíkur og annað svaf úti á palli sem er öruggur. Ég veit að það hefði getað farið illa ef öll væru hér inni að sýsla eitthvað. Skrýtið að það var allt í messi hérna inni, samt tók ég ekki eftir því á leiðinni út, slíkur var æsingurinn að komast út á öruggari stað.
Síminn var svo rauðglóandi og ég vogaði mér aftur inn til að svara, tók þá loks eftir ástandinu inni og fékk sjokk þegar ég kom út aftur. Reyndi þó eins og ég gat að vera róleg til að hrella ekki börnin frekar, sem sátu bæði í fangi mömmu.
Við komum okkur fyrir úti í garði og ég rétt þorði inn við og við til að ná í ýmislegt sem vantaði....alveg merkilegt hve oft fór að skjálfa um leið og ég steig inn !!! Tvisvar hringdi Ruth systir í heimasímann því gemsar virkuðu ekki nema sms. Í bæði skiptin þurfti ég að hlaupa út í miðju samtali !!!
Ruth og Árni komu svo og sóttu okkur seinnipartinn og við gistum hjá þeim í Rvk. Voguðum okkur svo heim daginn eftir og við tók tiltekt......og tilraunir til að slaka á sem gekk illa því það skalf enn undir fótunum og þetta er orðið alveg ógeðslega pirrandi !!! Ég fann skjálfta núna síðast um kvöldmatarleytið og það nægir til að rugla hugarrónni sem var orðin svo góð.
Laugardagsnóttina fórum við svo aftur í bæinn því við vöknuðum við skjálftahrinu sem virtist ekki ætla að hætta og þá var ekki sjéns að sofna aftur á þessu heimili.
Það er ótrúlega vond tilinning að vera ekki örugg á eigin heimili, finna kvíða við að þurfa að fara að sofa og stífna upp þegar allt fer að hristast og glamra. Og það sem gerir þetta svo miklu erfiðari en annars er að vera með ungt barn á heimilinu.
Eg hef oft fundið skjálfta yfir ævina.....missti reyndar af skjálftanum 2000, fann smávegis fyrir eftirskjálftanum þá, en þessi gerði allar fyrri skjálftareynslur mínar að sjoppuferðum !!!
Ég vona að þessu fari að ljúka, kýki reglulega á veður.is til að gá hvort skjálftunum sé ekki farið að fækka og svo reynist vera........veit samt ekkert hvort það sé eitthvað tákn um að þessu sé lokið.
En þetta er reynsla sem maður getur ekki ýmindað sér hvernig er fyrr en maður upplifir hana, hversu oft sem maður hefur séð þetta í sjónvarpi og blöðum eða heyrt frásagnir. Það er enginn fyrirvari, allt í einu er öllu snúið á hvolf með ærandi hávaða og allt hið sjálfgefna daglega öryggi hverfur fullkomlega og í örfá andartök veit maður ekki nema að þetta gæti verið manns síðasta. Það er auðvitað misjafnt hvernig fólkið upplifir þetta og það er háð því hvar fólk er statt þegar svona hamfarir eiga sér stað. Ég var á afar óþægilegum stað, liggjandi á gólfinu í litlu herbergi og með 3 ung börn í allri hrærisúpunni.
Þeir sem vilja vita um afdrif Ikea húsgagna minna þá eyðilagðist ekkert þeirra þó þau hafi fallið hvert á annað, m.a.s. voru einu myndirnar á veggjunum sem ekki skekktust einmitt frá Ikea !!! Ég var svo sem betur ór búin að festa nokkra skápana við veggi en þó ekki alla og þeir fengu sér ýmist "göngutúr" út á gólf eða duttu eins og fyrr segir.
ÉG VIL EKKI FLEIRI SKJÁLFTA !!! Ef ég blogga ekki meir út árið, þá er ég flutt til Svíþjóðar eða eitthvert þar sem jörðin er bara velnjuleg jörð, ekki hræripottur !!!
Bloggar | 5.6.2008 | 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Stundum veit ég ekkert hvað ég á að kalla pistlana mína......leiðist að þurfa að finna einhverja smellna fyrirögn sem á að vera bæði grípandi og forvitnileg !! Ég þjáðist líka af þessum kvilla í skóla þegar kom að ritgerðasmíðum.....
Annars var helgin góð, fór á dagmömmunámskeið á laugardagsmorgninum en þetta námskeið er út Apríl og mæting 3 í viku. Fór líka í eyðsluferð í kringluna......svona af því að kreppan er að skella á og þá er best að flýta sér að bruðla !!
Það er að styttast í reunion hjá ´71 árgangi í Öldutúnsskóla og það á pottþétt eftir að verða skemmtilegt.....sérstaklega þegar öll eighties lögin fara ð svífa um sali og fólk komið svolítið á trúnó-statusinn :-)
Það eru líka svo ofsalega margir sem hafa ekki sést í áratug og meira. Það er góð mæting skilst mér og mikill spenningur....fyrirpartý hjá mörgum og ætli það verði þá ekki eftirpartý hjá einhverjum líka.
Ég var annars hálfgert frík í grunnskóla, sagði stundum ekki orð heilu dagana en var svo hrókur alls fagnaðar þegar ég var með vinahópnum mínum eftir skóla, semsagt krökkum og unglingum sem ekki voru í skólanum mínum.
Hér koma nokkrar staðreyndir um mig síðan ég var on the ´80´s.
1. Ég hlustaði á Duran Duran þegar ég var í skólanum en á Ac/Dc utan skóla.
2. Ég eeeelskaði líka AHA.
3. Ég aflitaði á mér hárið og rótaði því upp í loft.....þar til mamma einnar vinkonu minnar kallaði það heysátu, þá fór ég að hugsa minn gang.
4. Ég djammaði mikið með mér eldri krökkum og vinsælast á þessum tíma var að fara niðrí miðbæ Rvk með fulla 2ja lítra flösku af Vodka í kóki.......for crying out loud !!!
5. Fyrsta kærastann eignaðist ég þegar ég var 15 ára, hann var jafngamall og ég og við eyddum rosalega miklum tíma í það eitt að kyssast.....lá við ofþurrki á vörunum.
6. Þegar ég drakk mig fulla í fyrsta sinn var það af rósarvíni, það var í partýi árið ´86 eða ´87, man það ekki alveg.
7. Ég hitti Gaua " AC/DC" í því partýi og varð rosalega ástfangin strax.......og þar sem hlutirinir gerðust hratt á þessum tíma þá var ég búin að góma hann degi síðar.
8. Ein ástæðan fyrir því að ég varð svona ástfangin var að hann elskaði Ac/Dc....alveg eins og ég.......og svo var hann með sítt hár og alveg ógeðslega sætur.
9. Ég meikaði mig svo mikið á þessum aldri að einu sinni var ég kölluð meikdolla og varð rosalega sár.
10. Ég var aldrei skotin í neinum strák í skólanum, nema einum sem var með mér í bekk.......hann að vísu þoldi mig ekki, og það kannski var einmitt ástæðan fyrir því að ég var svona hrifin.......
11. Ég reykti í fyrsta sinn uppi á hólnum í Hafnarfirðinum með Klöru vinkonu minni....við földum okkur bakvið stein og fannst okkur við vera svaka flottar....við vorum 13- 14 ára.
12. Þegar ég byrjaði að reykja eignaðist ég allt í einu fleiri vini.......
13. Ég var sett í tossabekk með öllum hinum sem féllu í áttunda bekk....og það var gert allt annað en að læra í tímum, við gátum læst kennara úti því byggingin var svo ný og ekki gert ráð fyrir slíkum athæfum.
14. Haukur skólastjóri var allt annað en hrifinn af þessum tossa og lúserabekk og mætti því sjálfur stundum til að kalla upp....og gerði svo bara grín af manni þegar maður var mættur....svona for once.
15. Ég var aðeins einu sinni skömmuð í skólanum og það var Steinarr kennari þegar ég neitaði að standa upp til að fara í smíði.....sat eins og klessa upp við vegg hálfsofandi og hreytti einhverju í hann og þá reif hann mig upp sótrauður af bræði.
Jamm....kannski ég komi með fleiri staðreyndir um mig næst.....gaman að rifja þetta upp :-) og af nógu er að taka !!!
See ya !!
Bloggar | 31.3.2008 | 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggvinir
| Jan. 2012 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 | ||||
Myndaalbúm
Bækur
Orð frá mér.
"Þegar þú horfir í barnsaugu ertu að horfa í augu Guðs." Setning sem ég las í pistli eftir Jón Gnarr.
Á náttborðinu mínu.
Dagbókin mín.
Tónlist
Í spilaranum í dag.
Katie Melua
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 18737
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar




anyja
addni
bad
bryndisr
ellasprella
gudjonbergmann
innipuki
kiddirokk
lauola
lenapena
ruth777
ruthasdisar
saedis
thelmaasdisar
oldo1971





